Jæja, þá er það ákveðið!

Jæja, þá er Steingrímur J. búinn að ákveða, að vel athuguðu máli, að ákvörðun Einars K. standi út þetta ár.

Ég veit að þetta er umdeild ákvörðun.

Menn hefðu átt að æsa sig meira og hallmæla Steingrími fyrir að ætla að fórna 300 störfum. En hann er bara þannig að hann skoðar málin áður en hann tekur ávarðanir. Þetta mættu fleiri gera, þ.e. athuga málin frá mörgum hliðum með aðstoð ýmissa hagsmunaaðila, velta upp og vega hagsmuni og passa að fórna ekki meiri hagsmunum fyrir minni.

Ég bara vona að þetta skaði ekki ferðamannaiðnaðinn og að við getum losnað við afurðirnar. Ég hlýt að álykt sem svo að Steingrímur J. hafi athugið þessi atriði meðal annarra.

Hvað segja Frjálslyndir nú?


Hendur fram úr ermum!

Nú er rúmur hálfur mánuður liðinn síðan nýja stjórnin tók við. Mikið er búið að ganga á.

Nýja stjórnarandstaðan er með alls kyns athugasemdir, eins og stjórnarandstöður eiga að gera, en þeirra gagnrýni felst helst í því að saka stjórnina um leynd og ósannindi og að þeir eigi í raun þessi frumvörp sem verið er að leggja fram.

Þetta kemur manni spánskt fyrir sjónir.

Hvað máli skiptir hvaðan gott kemur? Það ætti að vera auðvelt fyrir þingmenn að sameinast um að samþykkja frumvörpin (sem þeir segjast eiga) hratt og vel, þó að sjálfsögðu þurfi kannski að lagfæra og betrumbæta ýmislegt í meðferð nefnda.

Nú er þess allt í einu krafist að allt komi í einni svipan, en fyrri ríkisstjórn hafði nægan tíma til að gera eitthvað, en þess sást ekki stað.  Þeir lögðu þessi frumvörp ekki fram.

Til þess ber auðvitað að líta að mál þarfnast undirbúnings og þessi stjórn er ekki búin að vera lengi við völd. Hins vegar er ljóst að mörg mál eru nú að sjá dagsins ljós, mál sem eiga eftir að koma almenningi og fyrirtækjum til góða og geta vonandi orðið til þess að fjölskyldur missi ekki húsnæðið og að bankar og fyrirtæki geti farið að starfa eðlilega.

Mér sýnist þessi stjórn láta verkin tala, hvar fyrri stjórn lét ekkert tala nema aðgerðaleysið að því er virtist. Alla vega er alveg ljóst að fyrri stjórn tókst ekki að róa þjóðina og fullvissa hana um að verð væri að vinna.

 


« Fyrri síða

Höfundur

Gústaf Gústafsson
Gústaf Gústafsson
Áhugamaður um stjórnmál, tónlist, íþróttir og heiminn almennt.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband