26.2.2009 | 19:02
Fer fram á að minni persónulegu ábyrgð verði aflétt!
Það var merkilegt að hlusta á fréttirnar á Stöð 2 áðan.
Menn taka lán og ákveða svo að persónulegri ábyrgð þeirra sjálfra, ásamt vinum og vinnufélögum, sé aflétt af lánunum. Bara lán tveggja bankastjóranna sem þeir afléttu persónulegri ábyrgð á eru að upphæð 15 milljarðar. FIMMTÁN MILLJARÐAR KRÓNA! Sparnaðurinn sem þarf í heilbrigðiskerfinu eru 2,6 milljarðar.
Jú, þeir voru að vísu bankastjórar, en mér finnst með ólíkindum að þetta sé yfirleitt hægt. Getur bankastjórinn minn tekið þá ákvörðun að mín ábyrgð á þeim lánum sem ég hef tekið verði aflétt? Ef svo er þá fer ég hér með fram á það, bara af því að ég er jú samlandi, bý í grenndinni og er yfir höfuð jákvæður gagnvart bankanum og... hef stuðlað að vexti bankans árum saman með því að vera með yfirdrátt og lán, þó svo að ég hafi asnast til að borga þetta niður í gegnum árin. Þetta getur varla verið neitt mál, þar sem núllin á minum lánum er hægt að telja á annarri hendinni.
Það er ekki oft sem ég verð agndofa yfir innlendum fréttum, en það gerðist í kvöld.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.